sunnudagur, júní 26

A armar

Um helgina er ég búinn að gera smávegis, samt ekki næstum eins og til stóð en hverjum er ekki sama. Allt hefur þetta jú sinn tíma. Það sem hefur þó gerst er það að ég fór með A armana mína niður í Heklu þar sem ég glerblés þá flott og styrkti svo ægilega. Sauð á þá 4 flatjárn hvorn, tvo að ofan og tvo undir, þannig að nú geri ég ráð fyrir því að þeir haldi að minnsta kosti í logni. Þá náði hann pabbi minn brotnu blotunum úr og er því ekkert vesen að setja armana í eftir að ég hef fengið fóðringarnar sem ég er að bíða eftir. Planið er svo að nota næstu helgi í að koma vélinni ofan í, það ætti að verða leikur einn. Teppalagning er vel á veg komin en þetta er spurning um eitt gott kvöld í viðbót. Meira hefur svosem ekki gerst ég pósta aftur þegar eitthvað er að frétta.

miðvikudagur, júní 22

Ég er ekki jafn duglegur að fara niður í skúr eins og ég vildi. Reyndar er nú helsta hindrunin á vegninum þangað að hafa sig af stað. Einnig eru það leiðinleg verkefni sem láta bíða þar eftir sér eins og brotnir boltar. En fyrir þá sem það ekki vita getur reynst algjört HELL að ná þeim úr. Ég fór þó og náði mér í A arma í bílinn hjá honum Davíð racer en hann á einn SAAB sem var úrskruðaður látinn og því tilvalið að nota hann í parta fyrir hina keyrandi. Annan þessara arma hef ég glerblásið niðri í vinnu og kemur hann þokkalega út úr því.

Ég tók þá ákvörðun um að láta sandblása fyrir mig hurðirnar, topplúguna og bensínlokið til þess að þetta héldist nú bara ryðlaust í einhver ár. Ég fer með þessa parta til þessa kalls sem ætlar að blása þegar pabbi kemur heim á RAMinum þá hef ég pallbíl og þarf ekki að vera troða þessu inn í fólksvagninn. Á föstudaginn ætla ég svo að kaupa mér eitthvað af vakúm slöngum því að þá get ég sett mælaborðið í ásamt því klárað teppalagninguna. Varahlutina sem ég pantaði núna í dag verða komnir frá útlandinu og þá getur vélin farið ofan í, það myndi þá væntanlega gerast um aðra helgi.

Ég er orðinn saddur af þessu prójekti langar til þess að keyra bílinn í sumar, auk þess að mig vantar hann. Þannig var nefninlega að ég er með tanngnjóst í láni hjá Þóri en þar sem ég var að keyra hann kvaddi vinstri framhjólalegan en það lýsir sér í því að það hvín og syngur í öllu saman, þannig að ég vil ekki keyra neitt meir á honum nema ef vera skildi út á nes til þess að skila honum.

Jæja mikið er ég punkteraður, best að fara snemma að sofa.

fimmtudagur, júní 16

Ég í Trollhattan núna ? Nei ég er í skipholti..

Ég er um það bil að drepast, mig langar svo mikið að skoða alla SAABana sem eru á festivalinu í Svíþjóð núna. Bara ef ég hefði fengið frí í dag í vinnunni, þá hefði ég getað flogið til Köben í morgun og verið á svæðinu til þess að skoða alla SAABana. Ohhh, Þórir er búinn að senda mér ofsa mörg sms og við hvert þeirra langar mig meira út.

sunnudagur, júní 12

Ég og Kjartan rákumst fyrir algjöra tilviljun á mann sem var að keyra SAABinn sinn í mestu makindum á laugardagskvöldið. Þessi makindi urðu þó skammvinn því þegar tveir SAABar hittast langar þeim í kappakstur. Ég var á Tanngnjósti og þótti manninum mikið til koma þegar og hafði mig framúr honum eftir gott reis. Maðurinn heitir Diddi og á 83 8 ventla túrbó SAAB en sú árgerð er virðist eldast sérlega vel. Við stoppuðum hjá Toyota í kópavoginum og tókum heillangt spjall. Ég sagði honum að við hefðum stofnað SAAB klúbb sem hann ætlar að sjálfsögðu að ganga í en vegna gleymsku okkar Þóris var hann ekki látinn vita í tíma. Nú hef ég símanúmerið hjá honum og ætlar hann að sjálfsögðu að mæta á næsta hitting klúbbsins, sem er vel.

Það er svosem ekki margt í fréttum af mínum bíl nema hvað þetta mjakast allt í rétta átt, mætti gjarnan ganga hraðar en nennu til þess að fara niður hefur sárlega skort. Ég tók reyndar til í skúrnum áðan en ef það er eitthvað sem fer í mig þá er það að geta ekki labbað um án þess að vera nærri dottinn um hlutina. Þessu var því kippt í liðinn og verður þá allt mikið betra.

Ég hafði hugsað mér að kaupa mér einhverja ódýra stafræna myndavél en Grétar er að fara til Köben á System of a down tónleika og hann kippir væntanlega einhverri myndavél úr fríhöfninni með fyrir mig. Um leið og það er afgreitt fara myndirnar aftur að hrúgast inn á myndasíðuna mína.

Þangað til næst

sunnudagur, júní 5

Glæstur sigur í höfn!!!

Ég keppti í aftur í kvartmílunni um þessa helgi. Það voru bara tveir bílar í 14,90 flokknum að þessu sinni þ.e.a.s ég og Ingvar á Dodge Neon. Staðan var eitt eitt og við tókum úrslita rönn, en þá vildi svo óheppilega til að Ingvar þjófstartaði og því hafði ég sigur úr bítum. Ég bætti einnig tímann minn og hraðann en ég hafði áður farið á 15,177 sek og 88,?? mílum en ég sigldi niður í 15,028 á 90 mílum sem er alveg ágætt á óbreyttum SAAB. Það var gaman að keppa í gær þrátt fyrir að við værum bara tveir og svo skiptir reynslan sem hleðst inn í hvert skipti líka máli uppá frekari þátttöku, og þá vonandi einhverntíma á mínum eigin SAAB. Annars er 9000 bíllinn alveg klassa kerra, auðvitað væri gaman við setja á hann stórt púst og kannski dass af race bensíni til þess að sjá bara hvað hann kemst (kannski færa sig niður í 13,90 flokkinn) því alltaf þegar keppt er í svona sporti vill maður meira og meira en þá verður líka erfiðara að fá hlutina til þess að virka og af því hefur eigandi þessa bíls sko yfirgripsmikla þekkingu og reynslu:)

Ég er annars búinn að ákveða að láta hann Þóri kaupa fyrir mig efri A armana úti í Svíþjóð, um leið og ég get sett þá í er ekkert að vanbúnaði að setja vélina í. Um næstu helgi fer ég svo uppí víkur-ós og klára að ryðbæta þessa einu hurð sem eftir er og þá geta þeir klárað að mála heila klabbið.

miðvikudagur, júní 1

Ég hef haft lítinn tíma til þess að skrifa hér inná síðuna. En þá má ekki túlka þannig að ég liggi í í einhverju alsherjar móki, því fer fjærri. Ég byrjaði nefninlega að vinna hjá Heklu á þriðjudaginn í síðustu viku og ég hugsa að það verði ágæt dvöl. Allavega fæ ég alveg að gera ýmislegt eins og að smíða, sjóða, setja saman tæki og tól og svo fór ég til keflavíkur einn daginn að skipta um pönnupakningu í báti nokkrum sem heitir Happasæll. Hann er með tveimur 500 hestafla Caterpillar vélum sem láta hann keyra nokkuð hratt vegna þess að þetta bara pínulítill plastbátur.

Af SAABinum er það að frétta að ég er búinn að hengja í loftið á honum headlinerinn, setja hljóðeinangrunina í botninn tengja leiðslurnar fyrir útvarpið og sitthvað fleira smálegt. Ég er í smá brasi með efri A armana sem spindlarnir festast í en þeir eru bognir. Ég get alveg rétt þá og styrkt og ég hugsa að ég fari þá leið vegna þess að þetta er rándýrt í útlandinu. Á meðan þetta er ekki í bílnum held ég að ég geti ekki sett vélina í hann afþví að þá kæmi ég örumunum ekki aftur í. Ég laga þá um helgina, reyndar væri líka ansi gott að fara að klára að laga hurðirnar uppi í víkurósi svo að þeir geti klárað að mála fyrir mig. En ef ég er ekki þar á hverjum degi gerist ekkert. Jafnvel væri spurning um að fá þá til að ryðbæta þessa einu hurð sem eftir er og væri ég alveg til í að vera laus við það, en þá gæti ég allt eins bara beðið til eilífðarnóns vegna þess að þeir hlaupa ekkert í svoleiðis verkefni. Þetta er allt spurning um skipulagningu og forgangsröðun, en ég get nú varla sleppt þátttöku í kvartmílunni á laugardaginn, það þarf að keyra SAABinn enn hraðar, sem ætti að verða auðsótt.

Meira seinna....