Já ég ætla að leyfa mér að skrifa smá um annað enda gúrkutíð í SAAB málum hjá mér m.a. afþví að ég er lasinn.
Í kvöldfréttunum var frétt um að hann Jón Ásgeir, baugsmaður hefði haldið aðalfund hjá sínu fyrirtæki og þar sagði hann meðal annars að ríkisstjórnin ætti næsta leik á borði ef matvöruverð ætti að lækka enn frekar. Þá sagði hann að ríkisstjórnin þyrfti að aflétta innflutningshöftum af grænmeti og ýmsum vörum sem framleiddar eru hér á landi en ekki má flytja inn afþví að þessi stjórn hefur svonefnda landbúnaðarstefnu.
Með því að aflétta þessum höftum væri hægt að fytja inn grænmeti frá einhverjum bananalýðveldum þar sem fólk er hneppt í þrælkun og því boðið að vinna fyrir engin laun, þá fengjum við kannski aðeins ódýrara grænmeti og Baugur meira í vasann sinn djúpa.
Ég spyr: Afhverju er ekki hægt að selja raforku til bænda fyrir austan fjall á niðursettu verði til þess að þeirra vörur verði samkeppnishæfar við þær útlendu? Vilja pólítíkusar hér á landi bara selja raforku á niðursettu verði til stóriðja sem íslendingar eiga eitthvað sáralítið í og skapa kannski eitthvað á annaðhundrað störf til lengri tíma ? Við vitum sko sannarlega að ekki fást íslendingar til þess að vinna við uppbyggingu virkjunarinnar fyrir austan!
Ég er ekki alveg til í að þessi innflutningshöft verði felld niður með þeim afleiðingum að framleiðsla hér á landi myndi leggjast af. Þar með er ég líka ósammála þessari ríkisstjórn í því að halda virkilega stóriðja reddi öllu, ferðamannaiðnaður á Íslandi verður nefninlega sífellt stærri atvinnugrein en enginn vill koma til lands þar sem er búið að sökkva hálendinu undir einhver ljót uppistöðulón.
Ég er nefninlega kominn inn á þá línu að hlutirnir þurfi kannski ekki endilega að vera ofvaxnir til þess að eitthvað sé með þá gerandi, en þetta er bara alveg svakalega íslendingslegur þankagangur. Gera hlutina svo myndarlega að engu þurfi við að bæta seinnameir. Ég vona til dæmis að mennirnir sem eru að kaupa alla evrópu núna sbr. KB-Banki, Baugur og Bakkavör hafi hugsað dæmið til enda vegna þess að einusinni sagði vitur maður: Things you own, end up owning you.
Allavega finnst mér þessi ríkisstjórn frekar þunnur pappír hún þynntist eiginlega alveg út eftir að Halldór tók við. Ég er á því að Davíð hafi nú verið hálfu skárri en þetta dauðyfli sem Dóri er, allavega var stundum hægt að hlæja að yfirgengilegum hroka og frekju Davíðs en hinn er bara plein leiðinlegur.
Þetta er allavega eins og þetta horfir við mér, margt sem þarf að bæta en auðvitað verða alltaf misjafnar skoðanir á hlutunum og mín skoðun kannski langt frá því að vera rétt.
Kv. Birkir