fimmtudagur, febrúar 24

Nýr SAAB í fjölskylduna

Já það er rétt! Skötuhjúin og ofurparið Grétar og Sigga hafa nú selt Toyotuna sína og keypt í staðinn alveg ÆÐISLEGAN SAAB 900 S, en sá er m.a. með 2,3 l vél, beinskiptur með leðri, loftkælingu, ABS og geisladiska magasíni svo fátt eitt sé nefnt. Við Grétar bónuðum hann hátt á lágt hér áðan og tókum síðan stuttan hring á honum. Einnig er gaman að segja frá því að hann fékk nýja gorma að framan (það er samt örugglega ekkert að þessum gömlu:) og splunkuný sumardekk en auk þess voru nagladekkin ný. Þetta er alveg frábær bíll, líður alveg hreint áfram eins og andi sem svífur yfir vötnum og hvar sem maður horfir sér maður að hann vekur eftirtekt. Ég óska þeim til hamingju með þennan gæða SAAB sem á sko örugglega eftir að reynast þeim vel.

Af túrbínunni minni er það hinsvegar að frétta að hálfvitinn sem seldi mér hana fékk hana aftur í hausinn vegna þess að hann hafði ekki sent öll þau gögn sem hann þurfti að senda með henni. Hann lét mig ekki einusinni vita af þessu þannig að ég gæti bara sagt honum að senda þetta með flugi, en nú get ég allt eins átt von á því að þurfa að bíða í 45 daga í viðbót, sem kemur ekki að sök svona þannig lagað séð, en þar sem hann er með fullt af peningum sem ég á líður manni betur með að vita af þessu einhverstaðar þar sem maður getur allavega fengið tracking númer. Vona bara að þetta berist fljótt.

Ég er einnig kominn með sumarvinnu, en ég verð á vélaverkstæði Heklu. Það held ég að sé mjög góður skóli þar sem ýmislegt ætti að vera hægt að læra.

Bílinn minn er ennþá á verkstæðinu en eigandi þess hafði slasast á vélsleða og meira að segja alveg helling þannig að vinna við bílinn hefur ekki komist á fullt skrið ennþá, það þýðir heldur ekkert að vera að svekkja sig á svona töfum og vera með eitthvað nöldur því þá segja þeir manni bara að troða þessu uppí teilpæpið á sér. Þeir voru að vísu búnir að festa á hann brettið en eitthvað lítið annað. Þetta hefst allt á endanum.

Annað er svosem ekki að frétta en þetta eru afar ánægjulegar fréttir af þeim Grétari og Siggu, en þá er bara einn af þeim sem ég hef þekkt lengst eftir að eignast SAAB en þar er kannski ekki mikil von vegna þess að kona þess ágæta drengs vill hreinlega ekki sjá SAAB á sínu heimili. Mér finnst samt sniðugt að meirihluti þess fólks sem ég hef mest samskipti við séu á SAAB :)

Kv. Birkir

laugardagur, febrúar 19

Helstu fréttir

Jæja þá. Ég fór uppí Víkur-Ós í gær, þeir voru byrjaðir á bílnum mínum en þó gengur þetta á hraða snigilsins. Frambrettið var komið á og voru þeir eitthvað búnir að eiga við hægri hlið bílsins líka. Miðað við hvernig þetta gengur hjá þeim núna á ég ekki von á því að þeir hafi það af að klára þetta fyrir vikulokin næstu.

Ég náði líka í aðra vél í bílinn minn í gær til Davíðs Stefánssonar SAAB manns með meiru. Við nánari eftirgrennslan reyndust vera pyttir í blokkinni minni og hún því nærri ónothæf. Heddið sem ég átti var líka talsvert skemmt, þannig að ég er búinn að ákveða að nota vélina sem í fékk hjá honum.

Ég fékk líka rúðurnar mínar til baka í gær úr filmuísetningunni. Þetta er mjög flott, ekkert mjög dökkt og held ég að þetta fari bara ágætlega við framrúðurnar sem eru örlítið reykaðar original.

Eitt hef ég líka kannað betur frá því síðast en ég og Nóni mældum stimpla með stöngum og komumst að því að munurinn á þyngdinni er fyrst og fremst fólginn í stöngunum. Nýrri blokkirnar þ.m.t nýja blokkin mín eru með þyngri stöngunum þannig að munurinn á stimplunum sjálfum er sára lítill. Sveifarásinn í nýrri túrbóvélunum ætti þá þar af leiðandi að vera léttari ef við gefum okkur að þyngd andvæganna sé sú sama, en það er bara ekkert gefið hér í þessum heimi þess vegna þarf að vikta sveifarásana. Best að taka með sér baðvog næst í skúrinn.

Síðar
Birkir

sunnudagur, febrúar 13

Að polera ventlalokið mitt fína

Ég eyddi föstudags og laugardagskvöldinu í að pólera ventlalokið mitt. Ég er nálægt því að vera hálfnaður með það, þetta er ansi mikið verk get ég sagt ykkur. Ég gerði líka ansi merkilega uppgötvun á föstudagskvöldið þegar ég vigtaði stimplana mína(með stönginni á reyndar) þeir eru 1445 grömmm ca á meðan stimplarnir sem eru með 9:1 í þjöppu eru 1545 grömm. Þetta er helvíti mikill munur sérstaklega eins og fyrir race SAABa, sem er snúið kannski 7000 sn/min. Þessa tilraun þarf samt að endurtaka og gera betur þ.e að taka þá stimpilinn af stönginni og vigta í sitthvoru lagi, einnig fannst mér nokkuð skrýtið að ég átti í basli með að fá sömu töluna þegar ég vigtaði sama hlutinn aftur, kökuvigtin hennar mömmu er ef til vill ekki svona vélahluta nákvæm. Þetta verður þó kannað betur við tækifæri.

Ég leit inn í víkur-ós seinnipart föstudags en bílinn stóð þá ennþá á sama stað sem þýðir að þeir eru ekki byrjaðir. Ég ætla ekkert að kíkja á þá fyrr en á föstudag í þessari viku, þeir hljóta nú að fara að byrja á þessu.
Ég ákvað líka að láta setja dökkar filmur í afturrúðurnar mínar þrjár, ef mér finnst þetta eitthvað hrikalegt (sem ég á reyndar enga von á) get ég bara skipt um aftur, fæ mjög góðan díl á þetta þannig að mér finnst þetta ekki spurning.

Djöfull verður gaman að fara að keyra minn, ég settist nefninlega aðeins uppí Þóris SAAB um daginn og gaf mjög hressilega í og gamli keyrði sko alveg svaka hratt. Svona er Túrbóið gott

Túrbó Kveðja
Birkir

mánudagur, febrúar 7

Skoðanakönnun!

Hann Guðmundur vinur minn í skólanum fór að tala um að hann ætlaði að setja dökkar filmur í bílinn sinn og hann fengi einhvern góðan díl á það! Þá fór minns að hugsa á ég kannski að fá mér filmur afturí hjá mér?

Hvað finnst ykkur, svatur bíll með glærum stefnuljósum að framan, lækkaður og með airflow kitti! Er þetta góð viðbót eða of mikið ? Gaman væri að fá ykkar skoðun!

Kveðja Filmundur!

föstudagur, febrúar 4

Ég kíkti á bílinn í gær. Þeir voru ekki byrjaðir á honum þar sem þrír starfsmenn eru frá vegna veikinda. Vonandi byrja þeir strax í næstu viku. Þar sem ég var nú kominn uppeftir tók ég smá spjall við einn þeirra, en hann sagði mér að um leið og þeir myndu byrja tæki þetta u.þ.b. eina viku að klára sem þýðir að ég fæ bílinn áður en starfsvikan í skólanum hefst. Starfsvikurnar hafa bæði kosti og galla, maður er svolítið rifinn úr sambandi svona námslega séð en þó er þetta hressandi tilbreyting frá hefðbundnu skólastarfi, yfirleitt þótti mér t.d. gaman á lagningadögum í MH, en þessar starfsvikur eru svona svipað fyrirbæri og lagnó en þó með öðrum áherslum. Það góða er að yfir þetta tímabil þarf aðeins að mæta þrjá daga í skólann sem gefur heilmikinn tíma til þess að raða SAABinum saman.

Ég held ég verði að fara að koma upp einhverri myndasíðu hér eða tengli yfir á eina slíka en talsvert margar myndir eru komnar inn á myndavélar og tölvur útum allt. Þegar bíllinn verður klár þá finnst mér nú sjálfsagt að monta mig smá. Den bilen skal se so micket bra ut, og naturligvis være veldig snabb med den store turbin og mera slikkeri.

MVH
Birkir