sunnudagur, janúar 30

Meiri fréttir

Loksins er SAABinn farinn í málun. Ég var búinn að segja oft að ég ætti svo lítið eftir að þetta hefðist bara á einni helgi í viðbót, en þannig virka ekki hlutirnir. Í tilefni þessa stóráfanga ákvað ég að fá mér "smá bjór" þeir urðu reyndar 6 eða 7 sem er dágott á minn mælikvarða. Á meðan þessi bjórdrykkja átti sér stað byrjaði ég að pólera ventlalokið mitt, það er svakalega mikil vinna og ekkert mjög skemmtileg. En mér fundust leiðindi ekki hrjá mig það kvöldið því ég var í SAAB gleðskap í bílskúr einum í kópavogsbæ ásamt þeim félögum Nóna og Þóri. Næst ætlum við að bjóða fleirum í slíkan gleðskap.

Ég fer svo á morgun og tek alveg svaka mikið af myndum af bílnum einnig fer ég með hurðina hægra megin og húddið svo þeir geti punktað brettið á, þá verður einnig pælt í öðrum veigamiklum þáttum hvað varðar allt mögulegt, ég er dálítið að spá í að fara með afturstuðarann minn til þeirra þegar þeir eru búnir að mála skelina til þess að þeir geti bara fest spoilerana á bílinn og þar með límt afturspoilerinn á. Það er nefninlega betra að geyma þá á bílnum heldur en að fara að pakka þeim öllum inn og setja þá inn í herbergi til þess að þeir verði ekki fyrir hnjaski.

I'll keep you posted !

miðvikudagur, janúar 26

Dagens Nyheter !

Í dag fór ég uppí Víkur-ós þar sem ég ætla að láta mála SAABinn. Og þeir vildu taka hann núna á föstudaginn. Yes siry Bob. Bílinn er á leið í málun á föstudag.....Þarf ég að taka léttan skans á honum á morgun og semja svo annað hvort við Nóna eða Kjarra um að lána mér SAABinn sinn svo ég geti farið og leigt mér kerru og farið með hann. Því að auðvitað gengur ekkert annað en hann fari öðruvísi á staðinn nema í fylgd einhvers SAABs.

Annar hlutur einkar ánægulegur gerðist í dag. Ég fór aftur á stúfana í atvinnuleit. Ég byrjaði á því að fara í Kælismiðjuna Frost, þar sem ágætis náungi tók á móti mér. Sagðist hann ekkert vera byrjaður að pæla í sumarstarfsmönnum ennþá en tók þessu bara vel samt. Þegar það var búið fór ég svo í Heklu nánar tiltekið á vélaverkstæðið. Þar gat maðurinn sem sér um þessi mál ekki tekið á móti mér en ég fyllti bara út svona stafsumsókn. 45 mín ca, eftir að ég fór þaðan hringdi svo síminn hjá mér og maðurinn sem tók við umsókninni búinn að fara yfir málið. Kom svo í ljós að hann þekkir pabba; sagðist hann kannast við pabba fá því að hann var yfirmaður á Ísbor sem þá var og hét. Við tókum saman stutt spjall og það varð úr að ég á að tala við hann aftur um miðjan febrúar. Ég túlkaði það þannig að það væru miklar líkur á að hann hefði eitthvað fyrir mig að gera í sumar og það væri bara alveg frábært.

En eitt er víst, minn fíni SAAB er sko að fara að fá lakk á sig og eftir það verður bara gaman. Brummm Brum BBBBRRRRRUUUUMMMMM !!!!!

mánudagur, janúar 24

Atvinnuleit

Um þessar mundir er ég í atvinnuleit. Ég er búinn að fara á allnokkra staði s.s Kistufell, Vélaland, Framtak og svo einhver fyrirtæki í kælitæknibransanum. Ég veit ekki með ykkur sem hafið staðið í svona en einhvernveginn fæ ég það mjög sterkt á tilfinninguna að þessi sumarstarfamarkarður sé að mjög stórum hluta bara einhver klíkuskapur.
Tökum sem dæmi manninn sem ég talaði við uppí í Vélalandi, eftir að ég hafði kynnt mig og sagt honum hvað ég væri að hugsa byrjaði hann á því að þegja og bara alveg heillengi, ég stóð þarna eins og illa gerður hlutur fannst mér. Eftir þögnina sagði hann: ja við erum nú eiginlega alveg hættir í þessum skipabransa! Mín spurning sem ég gat ekki hugsað upp fyrr en löngu eftir að ég var kominn heim aftur er svona: og síðan hvenær störfuðu vélstjórar og vélstjórnarnemar eingöngu við eitthvað sjávarútvegs tengt?
Kannski hlæ ég og skrýki ekki nóg í svona viðtölum og hef kannski ekki nægan sannfæringarmátt í að segja mönnunum að ráða mig í vinnuna, ég sé nefninlega sá besti sem þeir gætu hugsað sér:)
Það gæti einnig hugsast að ég hafi náttúrulega ekki nein fyrri störf við svona smiðjur í farteskinu, allir vilja nátturulega vana menn. Bílskúrinn og svo að verða 2 ár í smíðum í skólanum er mín eina reynsla. En ef maður byrjar ekki einhversstaðar ,hvar byrjar maður þá?
Svo er eitt í viðbót, á ég ekki að þilja upp allt sem ég hef unnið við og lært? Á ég kannski ekki að vera skrifa að ég sé með stúdentspróf? Gæti það virkað öfugt þannig að menn hugsi; já já þessi vill nú bara sitja á rassgatinu og vera í skóla, hafa það fínt? Þetta væru náttúrlega fordómar af verstu sort en ég hef aðeins rekið mig á svona karaktera sem detta í þennan gír hérna: Bíddu ert þú ekki búinn að vera svo æðislega lengi í skóla? áttu þá ekki að kunna þetta allt (prumpu og sjúga uppí nefið hljóð).

Jæja það þýðir víst lítið að sitja heima og lesa, ég held áfram alveg ótrauður þó viðbrögðin hafi verið misjöfn. Ef þið lesendur hafið einhvað um þetta að segja eða teljið ykkur kunna einhver ráð þá væru þau vel þegin. En að öðru.

Nú er ég nefninlega búinn að rýfa minn fína SAAB mótor alveg í spað. Hann er í alveg ágætu standi þ.e.a.s. bullur, strokkveggir og sveifarás. Strokklokið er ekki alveg jafn æðislegt, hefur sennilega hitnað einhverntíma upp fyrir eðlileg mörk, einnig var smá blámi á stangalegum sem rökstyður þann grun okkar Nóna.
Boddýið fer núna efir næstu helgi í málun. Það verður geðveikt. Ég er líka alltaf að bíða eftir túrbínunni minni, þætti mjög skrýtið ef hún fer ekki að láta sjá sig. Jæja en ég skrifa meira þegar fréttnæmir atburðir gerast.

Birkir

mánudagur, janúar 17

Hurðirnar mínar og topplúgan!

Eftir góða rispu um daginn í pródjektinu góða fór ég aðeins að spá í hvort mætti bjarga hurðunum mínum og topplúgunni. Hef ég komist að eftirfarandi: Hægri hurðin er ónýt, ég tók því allt sem vert var að hirða innan úr henni eins og rúðuhalaramótorinn, spegilinn og samlæsinguna sem var reyndar ekki virk. Gaman væri að stinga honum í samband við fína spennubreytinn hans Þóris og athuga hvort þetta er eitthvað meira heldur en bara skítugir plöggar eða svona minniháttar vandamál sem hægt væri að leysa.

Vinstri hurðin er miklu betur farin, reyndar er smá dæld í henni en ekkert sem væri ekki hægt að laga, ég tók einnig innan úr henni svo auðvelt sé að sprauta hana. Reyndar var eitthvað leiðinleg á henni lömin, ef opnað er of mikið þarf að beita afli til þess að loka henni, þetta er algengt vandamál með þessar hurðir.

Topplúgan er líka afspyrnu ónýt, það er nokkuð ljóst að vatn hefur legið í "innra byrðinu" á henni og haft nægt súrefni til þess að mynda járnoxíð og skemma.

Af þessu hef ég samt engar áhyggjur redda mér bara nýjum pörtum (á reyndar aðrar hurðir), en topplúguna þarf ég að finna, það verður nú enginn stór höfuðpína. Anoðer dei anoðer dollar eins og vitur maður sagði.

Að síðustu fer vélin að fara í yfirhalningu, þannig að nú fer hver olíudropinn að verða síðastur til þess að leka af henni (hún er reyndar tóm) en það þarf samt ekki að þýða það að hún leki ekki olíunni:) Góður maður í Kópavogsbæ hefur skotið skjólhúsi yfir vélina mína á meðan upptekt fer fram en bílskúrinn sá er þeim lúxusi gæddur að hafa vinnuborð í sér, sem er gott.

Jæja, síðar
Birkir

fimmtudagur, janúar 13

Aðeins meira um SAABinn

Já nú er ég búinn að fá tíma fyrir bílinn í málun. Hann reiknar með að taka boddýið og plastið í endaðan janúar. Hann getur ekki tekið það fyrr vegna anna hjá fyrirtækinu en það er allt í góðu mín vegna (góðir hlutir gerast hægt). Ekki það að þetta sé eitthvað óásættanlegt þetta eru ekki nema tvær vikur.

Þá held ég að sé upplagt að fara að huga að vélinni því að ef bílinn fer eftir tvær vikur og verður tvær vikur í burtu gerir það mánuð sem ætti að vera meira en nóg til þess að tala við vélina og fá hana til þess að leka engri olíu og þess háttar.

Húrra fyrir þessu öllusaman, þetta er allt að gerast!!!

miðvikudagur, janúar 12

Allt í gangi !!!

Jæja nú fara hlutirnir að gerast. Bílamálarinn kom áðan og tók verkið út hjá mér. Hann var auðvitað afar sáttur við þetta enda ekki annað hægt að mínu mati:) Ég ætla svo að hringja í hann aftur á morgun þá gefur hann mér tíma til þess að koma með bílinn eins ætlar hann að gefa mér einhverja hugmynd um verð, hann sagðist þurfa bera þetta undir hann pabba sinn á verkstæðinu.

Túrbínan er líka lögð af stað frá USA. Hún verður hérna á landi eftir svona eina til tvær vikur.

Meira síðar
Birkir.

laugardagur, janúar 8

Lokahönd á boddý

Já nú er það í síðasta skiptið sem þið fáið að lesa að ég sé að hafa mig yfir boddývinnu. Við erum búnir að sjóða bitann undir að framan og hillufestinguna að aftan. Eftir þá vinnu tók í raun bara við aðeins meiri þrif, ég er nú samt að hugsa um að gleyma mér ekki alveg í því vegna þess að auðvitað fer sú drulla í möttuninni. Mjög gaman var að sjá bílinn í gær og það standandi á öllum dekkjunum sínum. Einnig er ég svaka sáttur við að fara geta litið uppúr þessum bætingum og gert vélina fína. Það væri náttúrulega idealt að koma henni saman á meðan bíllinn er í málun en ef hann er kannski ekki nema viku í burtu þá er það svolítið knappur tími. Þá mætti ef til vill hugsa sér að semja við frænda um að fá að rífa vélina í bílskúrnum hjá honum eða í einhverjum öðrum bílskúrum....

Í gleði minni í gærkvöldi eftir margra tíma vinnu við þrif og frágang fór ég að pæla í mínum fínu spoilerum. Ég stalst til þess að bera þá við bílinn og ímynda mér þá svona gráa eins og ég ætla að hafa þá við svatsanseraða bílinn. Enn óx gleði mín og ég ákvað að kaupa mér annan SAAB til þess að lagfæra og þá væri sko svona Viggen eins og var til sölu á ebay fyrir stuttu alveg geðveikur. Svo þyrfti SAABmafían að ná þessum tveggjadyra 900 með skottinu til sín áður en einhver eyðileggur hann, nýrra airflowkittið og kappakstur færu þeim bíl örugglega vel.... hugsiði ykkur

Kv. Birkir

sunnudagur, janúar 2

Nýtt SAABár

Árið sem nú er liðið var bara nokkuð skemmtilegt ár. Það endaði allavega með pompi og prakt í veislu sem var þræl skemmtileg. Ég hitti bílamálarana í lok ársins vegna þess að amma hafði lent í óhappi og þeir sögðust vera tilbúnir að taka bílinn fyrir mig um leið og ég væri til með hann. Mikið er gaman að sjá fyrir endann á vinnunni með boddýið þó svo að viðgerðum sé ekki alveg lokið því það á eitthvað eftir að eiga við hurðirnar og húddið, en það kemur síðar. Einnig get ég ekki beðið eftir túrbínunni ekki það að hún eigi eftir að komast í brúk strax bara skemmtilegt að fá eitthvað performans.....

Það verður gaman að sjá hvað þetta ár ber í skauti sér. Að lokum vil ég bara óska þeim sem þetta lesa velfarnaðar á nýju ári og svo náttúrulega vil ég að allir mínir vinir sem ekki aka um á SAAB sjái að sér og kaupi sér einn. Allavega er ég búinn að sjá einn sem mig langar í til viðbótar en fyrst klára ég nú þennan sem ég á núna.

Kv. Birkir