mánudagur, maí 23

Ég vann og fékk bikar og allt !!!

Já það er rétt. Ég keppti í kvartmílu í fyrsta skipti á laugardaginn, það var alveg geðveikt sérstaklega afþví að ég vann 14,9 flokkinn. Ég var á SAABinum hans Nóna sem er 9000 turbo með sjálfskiptingu og Direct Ingnition kveikju. Þessi kveikja er þeim góðu eiginleikum búin að hún þreyfar eftir brunaþrýstingi í brunarýminu og ef hún telur allt með felldu þá leyfir hún bílnum að keyra hraðar. Áður en keppnin hófst setti ég 99 oktana bensín á fína SAABinn og fór þá strax á 15,6 sekúndum. Þannig hélt svo bílinn áfram að bæta við sig og ég komst niður í 15,177 sekúndur á endanum, en þá var ég líka orðinn fínn á viðbragðinu. Stefnan er að sjáfsögðu sett á áframhaldandi keppnir á þessum mikla eðalbíl og ætti að vera vandalítið að komast niðurfyrir 15 sekúndurnar án teljandi breytinga. Sem sagt massa stuð sem vonandi verður framhald á.

Af mínum SAAB er heldur lítið að frétta. Ég er reyndar búinn að að líma nýtt efni á þakið á honum(headliner) en það tókst ekki alveg eins vel og ég hafði ætlað. Einnig skóf ég mestu ryðvörnina innan úr hægri hjólaskálinni og svo er ég aðeins kominn af stað með að víra útvarpið, en reyndar er það mjög lítið verk. Nú að síðustu er ég búinn að ryðbæta innan í húddinu og hurðina farþegamegin þannig að nú fer ég að geta látið mála afganginn af bílnum. Reyndar er þetta nú ekkert svo lítið, en vikan hefði getað orðið drýgri, en hann Jón Björn vinur minn var hérna í heimsókn og var gaman að sjá hann aftur eftir þessi 2 eða 3 ár sem liðu.

Á mánudaginn í síðustu viku kláraði ég svo skólann með glæsilegum árangri að mínu mati og eins og tíðkast í vélskólanum drekka menn öl eftir próflok. Það hefði ef til vill verið í lagi ef bjórinn hefði verið það eina sem menn drukku en sterkir drykkir settu svo svip sinn á kvöldið og endaði það með því að hann Birkir drapst í einar tvær klukkustundir í sturtunni þegar hann kom heim klukkan eitt eftir miðnætti. AHAHAHAHAHAHAHA. Þetta var alveg svakalega gaman hjá okkur og vil ég þakka þeim piltum sem tóku þátt í grillveislunni hérna heima en við höfðum áður legið yfir bókum í tvær vikur saman 9 talsins. Þetta var eftirminnilegt kvöld og ég segi bara Same time next year!!!

Sem sagt mikið að gerast og allt alveg jolly gaman! Skrifa meira þegar fer að komast skrið á SAAB mál hér í skúrnum.

fimmtudagur, maí 12

www.saabar.is

Er þetta ekki bara ágætis lén, segir allt sem segja þarf, er auðvelt fyrir útlendinga sem kunna að vilja kíkja á vefinn og þar fram eftir götunum. Nú er ég að sjálfsögðu að tala um SAAB klúbbinn sem við félagarnir ætlum að stofna í kring um þetta áhugamál okkar. Við erum komnir með einhver 40 nöfn á lista og eru það menn og konur úr öllum áttum.

Af mér er það hinsvegar að frétta að ég er búinn að taka öll prófin nema eitt og ég held að ég nái bara öllu með þokkalegum árangri. Ég var í prófi í gær en fer svo ekkert aftur fyrr en á mánudag. Þess vegna var kjörið að fara að athuga með SAABinn. Byrjaði ég á því í gærkvöldi að taka gorminn hægramegin að framan úr og skoða hvernig ástandið var á þeim hlutum sem honum fylgja. Ég komst svo að því eftir að hafa talað við Hrafkel í dag að SAABar frá þessum tíma sem minn er frá og eitthvað lengur eru hækkaðir. Ég fór einmitt til Hrafnkels til þess að spyrja hann um einhvern púða sem var ónýtur en þeir í bílheimum áttu ekki og fundu ekki í tölvunni. Þetta finnst mér vitanlega algjör snilld, þarna eru hátt í 10 mm í viðbót sem bílinn lækkar um fyrir utan þessa 25 sem nýju gormarnir gefa. Þessa hækkun tókum við Þórir ekki úr hans bíl þegar við lækkuðum GLEinn, ég býst fastlega við því að hann komi og fái gormaþvingurnar mínar lánaðar og taki þennan óþarfa úr, þegar hann skiptir um bremsur.

Ég fór svo til Óla og náði í Autronic tölvuna mína í dag. Óli var búinn að víra þessa tölvu í hjólið en lét mig hafa vírdræsuna með henni með öllum plöggum og tilheyrandi, þannig að það verður varla hægt að tala um að ég þurfi að víra bílinn, þetta er nánast plug and play, sem er fínt. Gunni gaf mér svo þetta líka fína brakket sem hann er hættur að nota til þess að ég gæti fest tölvuna í bílinn. Ég er afskaplega ánægður með þetta og hlakka mikið til að taka þessa fínu græju í notkun.

Kvöldið þurfti svo að sjálfsögðu að enda með því að Birkir skemmdi eitthvað. Þannig var að ég þarf að losa efri spyrnurnar úr bílnum vegna þess að þær eru ekki alveg eins og best verður á kosið. Ég byrjaði því að skrúfa boltana úr, sem gekk vel þar til ég braut einn þeirra í. Jæja það var nú ekki það eina. Ég hélt áfram að skrúfa en þá brotnaði róin sem boltinn skrúfast í og það er vesen vegna þess að ég held að hún hafi verið soðin föst. Þetta var svolítið ryðgað þarna fyrir aftan þannig að nú liggja danir í því. Jæja þetta er ekkert óyfirstíganlegt, en þetta tefur allt og þyngir verkið, þegar þarna var komið við sögu hætti ég, og ég ætla ekkert aftur í skúrinn fyrr en ég er búinn í prófunum.

Jón Björn vinur minn kemur á Sunnudagskvöldið til landsins, en við höfum ekki verið í neinu sambandi í svolítið langan tíma, hann hringdi um daginn í mig og sagðist vera á leiðinni. Auðvitað er bara gaman að hitta hann aftur, ég get örugglega fengið hann til að aðstoða mig í skúrnum, hann ætti sko alveg að geta það.

Later...

laugardagur, maí 7

Leti og vesin

Hef ekki ennþá komið mér í að taka myndir af drossíunni eftir að hún kom úr málun. Málið er það að ég á enga myndavél og vélin sem pabbi á getur fyrir einhverra hluta sakir ekki tengst stóru tölvunni. Það þýðir að ef ég ætlaði að setja inn myndir þyrfti ég að gera það á 56 K módemi en því nenni ég að sjálfsögðu ekki. Því er ég búinn að biðja hana Hildu að koma með sína vél næst þegar hún er á ferðinni næst ásamt hugbúnaðinum sem henni fylgir og þá loksins get ég sett inn myndir.

Jæja ég er að svona á byrjunarpunkti í sambandi við samsetningu. Þó fór ég í gæt og keypti nokkuð af rafmagnsdóti hjá Nesradíói en voru það m.a. rafkaplar sem leggjast aftur í fyrir rafgeymi, loftnetsfót, snúru og eitthvað fleira smálegt. Ég held að það sé lang best að byrja aftur á byrjunarreit í sambandi við lagnir í útvarpið og geislaspilarann, þetta var allt einhvernveginn og einhvernveginn, samsett og sundurskorið á ótal stöðum. Nú á ég allt til þess en reyndar vantar mig rafteikningar af bílnum, en því er nú fljótreddað.

Jæja ég set inn myndir á miðvikudaginn í þegar ég er búinn í þessum fjórum prófum sem ég tek í þeirri viku.

Kv. Birkir

fimmtudagur, maí 5

Samsetning komin af stað!

Jæja ég fór niður í skúr í gærkvöldi eftir að hafa jafnað mig á hjartaáfallinu sem ég fékk í kjölfar vélstjórnarprófsins. Ég byrjaði á því að setja afturrúðurnar í SAABinn og hann er alveg heví flottur með svona dökkar filmur afturí, þvínæst setti ég afturljósin á hann en þau hafði ég hreinsað og sjænað til þannig að þau virtust sem ný.
Einhverjum kann að finnast eins og ég sé að byrja á vitlausum enda en ég bara varð aðeins að setja eitthvað á hann sem gefur manni þá hugmynd að einhverntíma í framtíðinni gæti þetta litið út fyrir að vera bíll. Fyrr í vikunni hafði ég þó brætt hljóðeinangrunina í botnin á honum. Í kvöld er alveg hugsanlegt að ég haldi svo áfram að gera eitthvað, en ég þarf að vera duglegur að læra.

Liturinn á bílnum er svartur. Hann er þó ekki alveg eins svartur og ég hafði hugsað mér vegna þess að það er blár sans í honum. Ég bað mennina bara um að sprauta hann með lit sem ég gaf þeim upp, en þeir hafa greinilega notað eitthvað sem þeir áttu og þurftu að losa sig við. Ég á enn eftir að fara með bílinn út í sól og sjá þetta þannig en ef til vill má alveg sætta sig við þennan bláma. Samt er skrítið að mennirnir geti ekki farið eftir frekar einföldum fyrirmælum.

SAABinn á sko eftir að keyra fínt, öðrumhvorum megin við mánaðarmót. Ég skrifa næst þegar ég er í stuði.