miðvikudagur, nóvember 23

Styttist nú í prófin

Það er ekki nema vika þangað til prófin byrja. Ég held að þetta sleppi nú allt fyrir horn en rafmagnsfræðin verður erfið. Hefði þurft að vera mikið duglegri í haust að reikna og gera.

Saabinn hefur staðið úti í einhverja 10 daga núna og alltaf jafn gaman að horfa á hann, þetta er rosalega vel heppnað hjá mér, þó ég segi sjálfur frá. Mér líður líka bara vel með að vera í pásu frá þessu vegna þess að þá verður gaman að fara af stað aftur þegar tími vinnst til. Þá er að koma öllum ljósunum í lag, sem er sjálfsagt bara spurning um að jarðtengja þau betur, finna út afhverju kúplingin slítur ekki alminnilega, láta hjólastilla og ryðverja og fara út að keyra.

Ég ætla niður í Helku á morgun og athuga hvort ég geti ekki fengið vinnu þar um jólin, það verður bara fínt að fá aðeins að skrúfa og vesenast einhversstaðar grútdrullugur upp fyrir haus.

Annars er ekki marg fréttnæmt þessa dagana hjá mér skólinn gengur fyrir og ég náði í dag að skila af mér öllum skýrslum sem ég átti eftir að gera þessa önnina, sem er léttir útaf fyrir sig. Jæja von er á meiru hér þegar eitthvað gerist í líkingu við að bíllinn keyri aftur.

mánudagur, nóvember 14

SAAB í salt um óákveðinn tíma!

Í dag pantaði ég tíma í hjólastillingu fyrir bílinn. Mig minnti að ég ætti einhverstaðar millilegg (sem fara undir efri spyrnuna) sem mig vantar til þess að þeir gætu stillt bílinn vel fyrir mig. Þau fann ég ekki, en kallinn sem ég talaði við sagði mér að hann gæti svosem smíðað eitthvað þarna undir ef ég fyndi ekki þessi millilegg mín.

Jæja, í gær tókum við pabbi rosa vel til í skúrnum því nú er hún Hilda systir að fara að flytja sína fínu fjölskyldu upp í Sóleyjarrima í nýja blokk þar, en hana vantar geymslupláss á meðan þessu stendur og þá er bílskúrinn fínn. Þannig að SAABinn þarf þá að fara að standa úti, ég hefði viljað láta ryðverja hann áður en hann færi út svona í lengri tíma og áður en ég léti gera það vildi ég láta hjólastilla, en mér finnst það rökrétt uppá að þér séu ekki allir löðrandi í einhverju ryðvarnarógeði við það.

Svo fór ég að reyna að setja í gang áðan, það gekk ekki, hann tók aldrei við sér einusinni, það fannst mér verulega skrítið þar sem hann var nú búinn að keyra einhverja 50 km núna yfir helgina og frekar vel að mínu mati. Það má ljóst vera að ég bíð ekki mönnunum í hjólastillingunni uppá að stilla bíl sem keyrir ekki sjálfur, er töluvert mikið vanstilltur og þarf að smíða einhver djöfulsins undirlegg fyrir efri spyrnurnar í. Þannig að þessi tími verður afpantaður í bítið.
Einnig hef ég ekki haft tíma til þess að laga það sem laga þarf fyrir utan innspýtinguna s.s. ljós og rúðupiss og fleira til þess að koma bílnum í gegnum skoðun en ég hafði viku eftir að ég var búinn að taka númerin út til þess að koma honum í skoðun, þessi vika er liðin.

Því er nokkuð ljóst að ég er að leiðinni niður í skoðunarstöð með númerin af bílnum mínum á morgun, þar sem þau verða lögð inn. Ég er búinn að eyða alltof miklum tíma í þetta núna í haust á kostnað lærdóms, hver vonbrigðin hafa rekið önnur og ég er þreyttur á þessum barningi, þessu verður ekkert reddað á einni helgi eins og ég hef svo oft talið mér trú um sérstaklega ekki þegar tvær vikur eru í prófin. Hér verður því numið staðar í bili, kannski kemst SAABinn á götur Reykjavíkur með hækkandi sól.

Nú er þetta ákveðið og ekki orð um það meir.
Birkir

fimmtudagur, nóvember 10

Heddið er komið á.....

og vonandi text þessum SAAB að keyra út úr bílskúrnum undir eigin vélarafli í þetta skiptið. Annars er klukkan margt og ég er farinn að sofa eftir ofurtörn í skúrum. Þakka þér fyrir innlit og hendur Þórir.

sunnudagur, nóvember 6

Í strokkloksfréttum er þetta helst

Í morgun um klukkan 11 átti ég vél sem var með 8,5:1 í þjöppunarhlutfall. Í dag klukkan 15:30 var ég í þann mund að verða búinn að hækka þetta hlutfall uppí 9,3:1. Nú eruð þið steinhissa og og botnið hvorki upp né niður í þessum ósköpum, en nú skal ég segja ykkur að SAAB hedd geta líka þurft að láta plana sig. En nú örstutt að málavöxtu. Þannig var að ég var aldrei búinn að fá góðan og þýðan gang í vélina, hún titraði öll og skalf og það lak út vatn á einum stað, svo neitaði hann að fara í gang í gærkvöldi þannig að ég var orðinn frekar hissa á þessu öllusaman. Þegar ég tók kertin úr þá rann út um gatið vatn og þar með var eiginlega ekki um annað að ræða en að heddið væri bilað. Eftir skraf og ráðagerðir og fjöldan allan að símhringingum fór heddið af um miðnótt í gærkveldi en það voru öndvegispiltarnir Þórir og Nóni sem hjálpuðu mér að losa það af.

Þegar það var svo tekið til skoðunar kom í ljós að það var undið og bogið bæði langs og þvers. Því var ekki annað í stöðunni en að plana það og endaði með að 1mm fékk að fjúka af. Þetta breytir að sjálfsögðu miklu um eiginleika vélarinnar og ætla ég í framhaldinu að athuga hvort ég geti fengið aðeins þykkari heddpakkningu einhverstaðar til þess að vega aðeins upp á móti því sem þurfti nauðsynlega að fara af. Heddið fer á í þessari viku og er þá vonandi að annað hjóð komi í strokkinn.

Ef heldur fram sem horfir fer kannski að síga á seinnihlutann en þetta kom náttúrulega verulega á óvart þegar ég ætlaði að fara að keyra.